Tveir tvöfaldir á Króknum
Leikfélag Sauðárkróks æfir nú leikritið Tveir tvöfaldir eftir Ray Cooney, í þýðingu Árna Ibsen. Leikstjóri er Ingdrid Jónsdóttir. Leikritið verður frumsýnt á opnunardegi Sæluvikunnar, þann 29. apríl næstkomandi í félagsheimilinu Bifröst.
Leikarahópurinn samanstendur af nokkrum gömlum kempum í bland við góða nýliða og má til gamans geta að tveir af leikurunum í hópnum hafa áður leikið í þeim uppsetningum eftir Ray Cooney sem félagið setti upp á seinasta áratug, Með vífið í lúkunum, 2006 og Viltu finna milljón?, 2008.
Leikfélag Sauðárkróks sýndi Ray Cooney fyrst árið 1978, leikritið Eltu mig, félagi sem er fyrsta sviðsetning á leikriti eftir Ray Cooney á Íslandi.
Þetta kemur fram á heimasíðu LS en þar er einnig rifjað upp að þennan dag (13. apríl) árið 1888 var Leikfélag Sauðárkróks upprunalega stofnað.
Í fyrstu stjórn félagsins voru Ludvig Popp, Valgard Claessen og Sigvaldi Blöndal.
Fyrsta sýningin sem félagið setti upp var leikritið Narfi eftir Sigurð Pétursson og er talið að það hafi verið sett upp í Sýslumannshúsinu, Aðalgötu 16 (sama hús og síðar hýsti Kaffi Krók).
Sama ár var leikritið Útilegumenn (Skugga-Sveinn) eftir Matthías Jochumsson sett upp í Poppspakkhúsi.
Félagið var formlega lagt niður í blábyrjun ársins 1907 og er talið að það hafi sett upp u.þ.b. 14 sýningar á þessu tímabili og sumar oftar en einu sinni, t.d. Skugga-Sveinn og Ævintýri á gönguför eftir Jens Christian Hostrup (í íslenskun Eggerts Briem).
Sjá nánar á skagafjordur.net/ls