Tvö verkefni við Hólaskóla hljóta styrk

Tvö rannsóknarverkefni unnin við Hólaskóla - Háskólann á Hólum hlutu styrki á dögunum en stjórn Náttúruverndarsjóðs Pálma Jónssonar  ákvað að styrkja verkefnið Þjálfunarlífeðlisfræði íslenska hestsins og rannsókn við fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans á lífríki grunnvatns straumvatna, undir stjórn dr. Bjarna K. Kristjánssonar.

Verkefnið Þjálfunarlífeðlisfræði íslenska hestsins er stýrt af Guðrún J. Stefánsdóttir, lektor við hestafræðideild Hólaskóla en samkvæmt heimasíðu skólans hlaut verkefnið kr. 1.000.000. Hér má lesa nánar um rannsóknina.

„Markmið Náttúruverndarsjóðins er að auka almenna þekkingu á íslenskri náttúru svo að umgengni okkar og nýting á verðmætum hennar geti í ríkari mæli einkennst af virðingu og skynsemi. Samhliða er leitast við að bæta tengsl Íslendinga við náttúru landsins og efla með því gott hugarfar, mannlíf og atvinnustarfsemi í sátt við umhverfið.

Markmiði þessu verði náð með því að styrkja verkefni sem fást við sköpun og miðlun þekkingar um náttúruna í víðum skilningi. Farvegurinn getur verið í gegnum listir, hvers kyns fræði og vísindi,“ segir á heimasíðu sjóðsins.

Fleiri fréttir