Umdeild Blöndulína
Opinn fundur um hina umdeildu Blöndulínu 3 sem leggja á frá Blöndustöð til Akureyrar, var haldinn í félagsheimilinu Árgarði í Skagafirði á annan í hvítasunnu. Aðsókn var mjög góð, um 60 manns mættu á fundinn. Á fundinum kynnti Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur stöðu vinnu við umhverfismat framkvæmdarinnar og aðalskipulags sveitarfélaganna á línuleiðinni og möguleika íbúa til að hafa áhrif á það ferli.
Bjarni Jónsson, forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, kynnti afstöðu sveitarfélagsins. Gunnþóra Ólafsdóttir, doktor í landfræði, kynnti rannsókn sína á áhrifum línunnar á ferðamennsku og útivist og Helga Rós Indriðadóttir kynnti sjónarmið íbúa frá svæðinu sem fulltrúi hóps íbúa í Skagafirði ásamt fleirum sem stóðu fyrir fundinum.
Sérstaka athygli vakti á fundinum þegar Gunnþóra Ólafsdóttir lýsti umfjöllun í frummatsskýrslu umhverfismats Blöndulínu 3 um áhrif línunnar á ferðamennsku og útivist. Í frummatsskýrslunni, sem gefin var út í mars síðastliðnum er mjög dregið úr þeim neikvæðu áhrifum sem Gunnþóra dregur fram í sínum niðurstöðum. Gunnþóra hefur gert athugasemdir við frummatsskýrsluna og bendir þar á fjölmörg dæmi þar sem rangt er farið með niðurstöðu sérfræðiskýrslu hennar. Landsnet kjósi að horfa fram hjá þeim neikvæðu áhrifum línunnar sem hennar rannsókn sýni fram á og velji að slíta úr samhengi texta með það að markmiði að fegra áhrif línunnar á ferðamennsku og útivist.
Bjarni Jónsson sagði frá því að sveitarfélagið Skagafjörður gerði athugasemdir við að í umhverfismati framkvæmdarinnar hafi einungis tvær leiðir í gegn um héraðið verið metnar þó svo að sveitarstjórn hafi á fyrri stigum málsins „bent á aðra möguleika í leiðarvali og framkvæmdakosti, svo sem að leggja línu í jörð, í að minnsta kosti að hluta til, aðrar stauragerðir, frekari rökstuðning fyrir áætluðu spennustigi og fleiri þætti „ eins og segir í nýlegri bókun sveitarstjórnar. Þar áréttar sveitarstjórn einnig að við undirbúning og vinnu að línulögninni verði „tekið ríkt tillit til hagsmuna heimamanna og skoðað hvort og þá með hvaða hætti hægt er að koma til móts við kröfur um línulögn í jörð að hluta til“.
Að loknum líflegum pallborðsumræðum, samþykkti fundurinn að skora á sveitarstjórnir allra sveitarfélaga á línuleið Blöndulínu 3 að hefja þegar í stað vinnu við breytingar á aðalskipulagi sveitarfélaganna og í þeirri vinnu verði fleiri valkostir skoðaðir til dæmis um leiðarval og lagningu jarðstrengs á hluta eða allri leiðinni.