Umhverfisráðstefna Grunnskólans austan Vatna
feykir.is
Skagafjörður
23.04.2012
kl. 09.31
Miðvikudaginn 25. apríl, á degi umhverfis bjóða nemendur Grunnskólans austan Vatna, á Hólum, Hofsósi og Sólgörðum til umhverfisráðstefnu í félagsheimilinu Höfðaborg, Hofsósi og hefst hún kl. 10:00.
Dagskrá:Gestafyrirlesari:
- Sólrún Harðardóttir frá háskólanum á Hólum: Njótum náttúrunnar
- Kynning frá Hólum: Nordplus verkefni um veðrið, og útiskólastofan á Hólum.
- Kynning frá Hofsósi: Nordplus verkefni um endurvinnslu og grænfánaverkefnið undanfarin ár.
- Kynning frá Sólgörðum: Nordplus verkefni um dýr og vettvangsferðir nemenda á Sólgörðum.
Auk þess verður til sýnis endurunninn pappír og Grenndarspilið sem skólinn var að gefa út verður til sölu á ráðstefnunni.
Allir velkomnir.
/Nemendur Grunnskólans austan Vatna