Umhverfisviðurkenningar afhentar í gær

Umhverfisviðurkenningar voru veittar í áttunda sinn í Húsi frítímans í gær en um er að ræða samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar. Öll framkvæmd verkefnisins er í höndum kvenna í klúbbnum sem eru 32 talsins.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar eru farnar tvær ferðir um allt sveitarfélagið yfir sumarið, bæði dreifbýli og þéttbýli og tillögum er skilað til fjáröflunarnefndar klúbbsins. Hún fer síðan lokaskoðun um allt sveitarfélagið og fer yfir tilnefningar hópanna. Lokaákvörðun er tekin í samráði við Helgu Gunnlaugsdóttur, garðyrkjustjóra sveitarfélagsins.

„Mikil vinna og natni er lögð í þetta val og ánægjulegt að sjá hve margir koma til greina til viðurkenninga.Val þetta fer aftur fram að ári og hvetjum við alla til að halda áfram að fegra umhverfi sitt,“ segir í fréttatilkynningu en viðurkenningar eru veittar árlega í allt að 7 flokkum.

Umhverfisviðurkenningar Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2012 fengu:

  • Brúnastaðir fyrir snyrtilegasta sveitabýlið með hefðbundinn búskap. Þar búa Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhannes Ríkharðsson.
  • Kvistholt fyrir snyrtilegasta sveitabýlið með óhefðbundinn búskap. Þar búa Ebba Kristjánsdóttir og Björn Svavarsson.
  • Austurgata 14 fyrir snyrtilegustu lóðina í þéttbýli. Þar búa Herdís Jakobsdóttir og Páll Magnússon
  • Kaffi Krókur fyrir snyrtilegasta umhverfi fyrirtækis. Fyrirtækið er rekið af Kristínu Magnúsdóttur og Sigurpáli Aðalsteinssyni
  • Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra fyrir snyrtilegasta umhverfi stofnunar.
  • Samgönguminjasafn Skagafjarðar sem einstakt framtak. Eigendur Gunnar Þórðarson og Sólveig Jónasdóttir.
  • Laugarvegur í Varmahlíð var valin snyrtilegasta gatan í Sveitarfélaginu Skagafirði.

Fleiri fréttir