Umhverfisviðurkenningar veittar í Húnaþingi vestra

Handhafar umhverfisviðurkenninga ásamt umhverfisstjóra. Frá vinstri: Hulda Einarsdóttir, Ólafur Stefánsson, Guðmundur Gíslason, Guðný Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson og Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri. Mynd: hunathing.is
Handhafar umhverfisviðurkenninga ásamt umhverfisstjóra. Frá vinstri: Hulda Einarsdóttir, Ólafur Stefánsson, Guðmundur Gíslason, Guðný Þorsteinsdóttir, Sveinn Karlsson og Ína Björk Ársælsdóttir umhverfisstjóri. Mynd: hunathing.is

Nýlega voru umhverfisviðurkenningar Húnaþings vestra veittar og var það í 21. sinn sem svo er gert. Eru viðurkenningarnar veittar árlega þeim aðilum sem þykja hafa verið til fyrirmyndar við fegrun lóða sinna. Nefnd vegna umhverfisviðurkenninga er skipuð af sveitarstjórn og heldur nefndin utan um valið ásamt Ínu Björk Ársælsdóttur, umhverfisstjóra.  Nefndina skipa Erla B. Kristinsdóttir, Birgir Þór Þorbjörnsson og Sólveig Hulda Benjamínsdóttir. Frá þessu er greint á vef Húnaþings vestra.

Að þessu sinni voru veittar þrjár viðurkenningar. Tvær fyrir heimilisgarða, einn á Borðeyri og einn á Hvammstanga, og ein til sveitabæjar og/eða fyrirtækjareksturs. Þessir hlutu viðurkenningarnar:

Hlíðarvegur 22 á Hvammstanga fyrir snyrtilega og fallega einkalóð.  Eigendurnir, Guðmundur Gíslason og Margrét Jóhannesdóttir, hafa hugað vel að umhirðu lóðarinnar sem ber þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.

Lyngbrekka á Borðeyri fyrir snyrtilega og fallega einkalóð.  Eigendurnir, Guðný Þorsteinsdóttir og Sveinn Karlsson, hafa hugað vel að umhirðu lóðarinnar sem ber þeim gott vitni um atorku og umhyggju fyrir snyrtilegu umhverfi.

Reykir í Hrútafirði fyrir snyrtilega landareign ásamt blómlegri ræktun sumarblóma. Eigendurnir, Hulda Einarsdóttir og Ólafur H. Stefánsson, hafa hugað vel að landareign sinni og sumarblómaræktun sem ber þeim vott um atorku og umhyggju fyrir fallegu umhverfi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir