UMSS hestamannamót 3. júní á Vindheimamelum
Sunnudaginn 3. júní nk. kl 15.00 verður haldið hestaíþróttamót í fimmgangi F1 og tölti T1. Einnig er stefnt á að keppa í gæðingaskeiði og skeiðkappreiðum ef næg þátttaka fæst. Næsta mót þar á eftir verður haldið föstudaginn 8. júní – þá verður keppt í fjórgangur V1 og slakataumatölt T2.
Mótið er gilt úrtökumót fyrir töltkeppnin á LM og fyrir Íslandsmót sem verður haldið á Vindheimamelum 18.-22. júlí. Skráning fer fram á netfanginu fjola@krokur.is fyrir laugardaginn 2. júní kl 15.00.