Unnu alla sína leiki

Strákarnir í 11. flokki körfuknattleiksdeildar Tindastóls, undir stjórn Bárðar Eyþórssonar, unnu alla sína leiki í 2. umferð B-riðils Íslandsmótsins en mótinu var frestað í nóvember vegna veðurs. Strákarnir spiluðu í Smáranum gegn Breiðablik, Fjölni og Hamar/Þór.

„Það er því ljóst að í næstu umferð spila strákarnir í A-riðli og eru þeir staðráðnir í að halda sér þar uppi, en þeir hafa svolítið verið eins og jójó á milli A og B í gegn um tíðina,“ segir á heimasíðu Tindastóls.

Úrslit og stigaskor leikjanna var með þessum hætti:

Tindastóll - Fjölnir 74-32. Viðar 19, Pétur Rúnar 18, Hannes 12, Friðrik 7, Finnbogi 7, Kristinn 4, Haukur 4 og Elvar 3.

Tindastóll - Breiðablik 59-53. Pétur 23, Finnbogi 13, Viðar 9, Kristinn 9, Hannes 4, Haukur 1.

Tindastóll - Hamar/Þór 57-36. Hannes 19, Pétur 14, Haukur 9, Viðar 8, Friðrik 5, Finnbogi 2.

Fleiri fréttir