Uppskeruhátíð körfuboltadeildar Tindastóls - Helgi Rafn bestur

Síðasta vetrardag hélt körfuknattleiksdeild Tindastól uppskeruhátíð sína á Mælifelli að viðstöddu fjölmenni sem skemmtu sér í sannkallaðri veislustemningu. Fluttir voru pistlar og gamanmál og dýrindis matur á boðstólnum.

Í tilefni þess að Helgi Rafn Traustason, fyrrverandi kaupfélagsstjóri og mikill velunnari körfuboltans á Króknum hefði orðið 75 ára þennan sama dag, en hann lést langt fyrir aldur fram, veitti Inga Valdís Tómasdóttir ekkja hans deildinni styrk upp á kr. 100 þúsund. Í lokin var svo upplýst hverjir fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir framlag sitt í vetur.

  • - Mestu framfarir: Þröstur Leó Jóhannsson og Hreinn Gunnar Birgisson
  • - Stigahæstur: Helgi Rafn Viggósson
  • - Frákastahæstur: Helgi Rafn Viggósson
  • - Besta ástundun: Hreinn Gunnar Birgisson
  • - Efnilegastur: Pálmi Geir Jónsson
  • - Besti varnarmaður: Helgi Freyr Margeirsson
  • - Besti leikmaður kosinn af leikmönnum: Helgi Rafn Viggósson

Fleiri fréttir