Uppskriftabók Öbbu - Fjóla Sigríður gefur út bók til minningar um mömmu sína
Fjóla Sigríður Stefánsdóttir er 31 árs fæddur og uppalinn Sauðkrækingur, en er í dag búsett með manninum sínum í Kópavogi. Móðir hennar hét Aðalbjörg Vagnsdóttir en var alltaf kölluð Abba. Hún lést þann 28. október síðastliðinn eftir hetjulega baráttu við krabbamein til margra ára. Á dánarbeðinu lofaði Fjóla móður sinni að gefa út uppskriftabók með uppskriftunum hennar en þær höfðu áður talað um að gera það en aldrei látið verða af því sökum heilsubrests hjá Öbbu. En nú er komið að því.
Abba var fædd þann 21. Nóvember 1951 og ólst upp á Minni-Ökrum í Blönduhlíð.
„Blönduhlíðin var henni mjög kær og dáðist hún alltaf að fallegu Blönduhlíðinni. Fordómalaus, þolinmóð og besti vinur vina sinna eru þau orð sem lýsa mömmu best, hún tók öllum eins og þeir voru og talaði hún nánast aldrei um sín veikindi við aðra en hún gat alltaf hlustað á aðra og veitt ráð,“ segir Fjóla um móður sína.
Listakokkur með fullkomnunaráráttu
Abba var sjálf uppalin við mikinn mat. Móðir Öbbu, hún Fjóla á Minni-Ökrum, var listakokkur og lærði Abba því margt af henni í gegnum tíðina í tengslum við matargerð. Abba var ung þegar hún fór að sjá um heimili sjálf, elda, þrífa, passa börn og allt það sem tengdist því að halda heimili, en hún flutti að heiman einungis 14 ára gömul.
„Mamma var með fullkomnunaráráttu gagnvart mat, bakstri og sérstaklega hvað varðar útlit á matnum, hún vildi alltaf hafa þetta 100%, og hún fékk alltaf nýjar hugmyndir að útfærslu og prufaði sig áfram alveg óhrædd. Eldhúsið var hennar uppáhaldsstaður og leið henni hvergi betur en í eldhúsinu. Þegar ég var yngri áttum við margar, margar stundir saman við eldhúsborðið og hún var alltaf að sýna mér eitthvað og spá og spegúlera. Stundirnar sem standa upp úr eru þegar ég var að læra heima, þá settist mamma alltaf með mér við eldhúsborðið, tók fram alla glimmerpennana sína, stílabók og byrjaði að skrifa uppskriftir. Það var magnað að fylgjast með henni því áhuginn og ástríðan var mikil og vandvirknin við skrifin voru 100%,“ segir Fjóla.
Baráttan við krabba frænda
Abba lést þann 28. október síðastliðinn eftir langa baráttu við krabbamein eða krabba frænda eins og Abba kaus að kalla meinið. Krabbi frændi var orðinn mjög kræfur á háa leigu sagði Abba, en hún greindist fyrst með krabbamein, bráðahvítblæði þegar Fjóla var fimm ára en Fjóla er í dag 31 árs. Öbbu var vart hugað líf en á einhvern ótrúlegan hátt tókst henni að sigrast á krabbanum í það skiptið. En þetta var bara fyrsti krabbinn sem bankaði upp á.
„2008 fær mamma að vita að hún sé komin með ristilkrabbamein, ég man alltaf þegar hún sagði mér þessar fréttir því það fyrsta sem ég hugsaði var að núna væri mamma að deyja. Eftir að hún dó áttaði ég mig á því að ég var alltaf að undirbúa mig undir það að hún myndi deyja, ég á við með því að hún fékk alltaf nýtt og nýtt mein og fór í fleiri, fleiri uppskurði, en sama hversu lasin hún varð stóð hún alltaf upp aftur svo mynstrið í gegnum tíðina hefur verið svo upp og niður og ég var alltaf að undirbúa mig undir eitthvað, en samt ekki því mamma sigraði alltaf allt.“
Eldamennskan árangursríkasta meðferðin
Fjóla segir að árangursríkasta meðferð móður sinnar við hennar krabbameini hafi verið að elda og skapa í eldhúsinu. Þangað fór hún þegar henni leið illa eftir að hafa fengið slæmar fréttir.
„Hún talaði mikið við sjálfa sig þegar hún var í eldhúsinu og var oftast í þeim heimi að hún væri að vinna á sínu eigin kaffihúsi og væri að elda ofan í fullt af fólki. Stærsti draumurinn hennar var að opna sinn eigin stað með sínum eigin réttum og að sjálfsögðu frábrugðinn öllum öðrum stöðum.“
Öbbu fannst ómetanlegt þegar fólk bað hana um að elda og baka fyrir sig og gerði hún það alltaf óhrædd með bros á vör.
„Í gegnum tíðina bakaði hún fleiri fleiri sortir af smákökum fyrir jólin og sendi alltaf til barnanna sinna og á vinnustaði þeirra, það klikkaði aldrei og allir í skýjunum. Í september hvert ár byrjaði hún oftast að spá í jólabakstrinum því jú hún þurfti að hafa nóg til svo allir gætu fengið.“
Hugmynd að uppskriftabók
Fjóla segir að hugmyndin um að gefa út uppskriftabók með uppskriftum móður hennar sé ekki ný af nálinni.
„Við töluðum um það fyrir mörgum árum að gefa út uppskriftabók eftir hana, hún var alltaf ákveðin í að gera það en með árunum urðu veikindin hennar meiri og gafst aldrei tími í að láta þessa bók verða að veruleika.“
„Ég átti samtal við hana stuttu áður en hún deyr um uppskriftasafnið hennar og ég spurði hana hvort ég mætti gefa þetta út, hún sagði Fjóla: „já villtu gera það fyrir mig, ég treysti þér 120% fyrir því.“
Fjóla varpaði þessari hugmynd upp fyrir almenning á samfélagsmiðlum og spurði fólk hvort það hefði áhuga á persónulegri matreiðslubók eftir Öbbu sem Fjóla ætlaði að skrifa, og viðbrögðin leyndu sér ekki.
„Viðbrögðin við þessari hugmynd minni fóru gjörsamlega langt út fyrir mínar væntingar og er ég rosalega klökk og óendanlega þakklát fyrir þessi viðbrögð og að fólk vilji eignast eintak af bókinni.“
Vill heiðra minningu móður sinnar
Þegar Fjóla er spurð að því af blaðamanni Feykis hvað það sé sem drífi hana áfram í að láta verða af bókaútgáfunni segir Fjóla:
„Ég hef glímt við mikla reiði síðan hún dó og á erfitt með að sætta mig við það að þrátt fyrir alla sigrana hennar af hverju fékk hún ekki að vera hjá okkur aðeins lengur og fá að njóta sín. Ég hef átt rosalega erfitt með það að rifja upp góðar eftirminnilegar minningar af henni því einhvern veginn er ég föst í þessum slæmu því ég horfði upp á hana, mörgum sinnum í annarlegu ástandi sökum veikinda sinna og þær hugsanir sækja mikið á mig. Ég vil ekki minnast mömmu sem bara sjúklings, ég vil finna allt af því góða sem hún gerði,“ segir Fjóla bjartsýn.
Fjólu langar til að heiðra minningu móður sinnar með því að gera persónulega, fallega og skemmtilega bók, byggða á uppskriftum Öbbu. Það er Fjólu mikilvægt að geta látið þetta verða að veruleika.
„Ég vil kveðja mömmu og fá sátt og ró innra með mér með því að deila fjársjóðnum hennar og í leiðinni styrkja gott málefni, en mig langar að láta ágóða af sölu bókarinnar renna til göngudeildar krabbameinssjúkra á akureyri en þar var mamma sín síðustu ár meira og minna og fólkið þar dásamaði hún endalaust fyrir að hugsa svona vel um sig.“
Fjóla er byrjuð að skrifa bókina, hún er komin með umbrot og hönnun fyrir bókina, sem og prentun. Eina sem hana vantar núna er hjálp almennings til að geta gefið út bókina og hefur hún brugðið á það ráð að setja á fót Karolinafund söfnunarsíðu til að létta undir kostnaðarliðnum.
„Það voru rosalega margir sem sögðu mér að setja inn söfnun inn á karolinafund.com, ég bar þessa hugmynd upp við þau og þau sögu að þetta væri fullkomið verkefni til söfnunar. Söfnunin inná www.karolinafund.com er farin í loftið og heitir verkefnið Uppskriftabók Öbbu. Ég yrði rosalega þakklát fyrir stuðning svo ég geti látið þetta gerast. Ég ætla að gefa allt í bókina og lofa því að ég mun skila henni vel af mér og mun stytta mörgum stundirnar. Ég vil enda þetta á því að þakka öllum fyrir stuðninginn. Ást og friður.“
/SMH
Áður birst í 21. tbl. Feykis 2021