Úr lífsins ólgusjó –Í fylgd með Sirrý
Menningarveisla Sjávarunnenda og annarra landkrabba verður haldin í dag og má segja að útvarpskonan Sirrý taki forskot á sæluna en þáttur hennar er sendur út frá Sauðárkróki í dag. Hafa margir Skagfirðingar verið í viðtali hjá henni í morgun. Í dag klukkan 15:00 verður menningar stemning með upplestri og tónlist á Kaffi Krók!
Eftirfarandi listamenn flytja verk sín úr lífsins ólgusjó:
Gísli Þór Ólafsson - Leikur frumsamin lög
Hilmir Jóhannesson - Les úr sjávarréttarsögunni: Gollar
Benedikt S. Lafleur - Les úr smásagnasafni sínu: Úr blóðsporum skálds
Sirrý – Sigríður Arnardóttir les úr nýrri bók: Laðaðu til þín það góða. - Sumir virðast ævinlega vera sólarmegin í lífinu og með bros á vör á meðan erfiðleikarnir leita aðra stöðugt uppi. Hvers vegna? Sirrý svarar þeirri spurningu.
Allir eru velkomnir.