Útgáfutónleikar Contalgen Funeral

Í tilefni af útgáfu plötunnar Pretty Red Dress, þá blæs Contalgen Funeral til þrennra útgáfutónleika. Fyrstu tónleikarnir verða á Græna hattinum á Akureyri fimmtudagskvöldið 6. september og hefjast þeir kl. 21 og kostar 1000 kr. inn.

Á heimaslóðum hljómsveitarinnar verða útgáfutónleikar á Mælifelli kvöldið eftir, föstudagskvöld, 7. september og hefjast þeir kl. 22 og er miðaverð 1000 kr. Syðra eru tónleikar þann á Lebowski Bar þann 14. september kl. 22.

Á öllum tónleikunum sér Myrra Rós um upphitun.

Platan er Plata vikunnar þessa viku á Rás 2 en hún kom út vikuna eftir Bræðslu og inniheldur 12 frumsamin lög.

 

Fleiri fréttir