Úthlutað til styrkvega í Húnaþingi vestra
Á fundi landbúnaðarnefndar Húnaþings vestra þann 3. júlí sl. kom fram að Vegagerðin hefur úthlutað 3,5 milljónum króna til styrkvega í Húnaþingi vestra á árinu 2019. Styrkvegir eru þeir vegir sem sem ekki falla undir skilgreiningar vega skv. lögum, s.s. malarvegi sem taka við þar sem þjónustu Vegagerðarinnar lýkur. Má þar nefna vegi yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast þjóðvegir; vegi að ferðamannastöðum, vegi að jörðum sem farnar eru í eyði o.m.fl. Í fjárhagsáætlun Húnaþings vestra fyrir árið 2019 er samþykkt að veita kr. 2.200.000 til styrkvega. Heildarupphæð til viðhalds styrkvega á árinu 2019 er því kr. 5.700.000.
Eftirfarandi tillaga um skiptingu fjárins var samþykkt samhljóða á fundi ráðsins:
a) Til afréttarvegar á Víðidalstunguheiði kr. 2.000.000
b) Til sérverkefnis á Víðidalstunguheiði v/skemmda v. brots á akstursbanni kr. 1.000.000
c) Til afréttavega í Miðfirði kr. 1.200.000
d) Til afréttavega í Hrútafirði kr. 950.000
e) Til vegar yfir Brandagilsháls kr. 300.000
f) Til vegar upp á Vatnsnesfjall kr. 250.000
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.