Útivistartími breytist í dag

Í dag 1. september breytist útivistartími barna og unglinga úr sumartíma yfir í vetrartíma. En á tímabilinu 1. september til 1. maí mega börn og unglingar ekki vera á almannafæri eftir því sem hér segir: 12 ára og yngri eftir kl. 20:00 og 13 – 16 ára eftir kl. 22:00.
Undanskilið er bein heimleið frá viðurkenndri skóla- íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Öll aldurstakmörk samkvæmt þessari samþykkt skulu miðuð við fæðingarár en ekki fæðingardag. Reglur um útivistartíma barna eru í barnaverndarlögum nr. 80/2002.
