Útsala á fallegum myndum í Safnahúsinu í dag
Hægt verður að festa kaup á fallegum myndum eftir Jón Hilmarsson á góðu verði í Safnahúsinu á Sauðárkrók á milli kl. 13 - 18 í dag. „Myndirnar eru flestar úr Skagafirði, einnig er að finna myndir annars staðar frá Norðurlandi vestra,“ segir við auglýsingu Jóns Hilmarssonar á facebook.
Myndirnar sem eru prentaðar á striga verða á allt að 30-40 % afslætti.