Valentine og Miles á leið á Krókinn
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við tvo bandaríska leikmenn um að spila með karlaliðinu á komandi keppnistímabili. Kapparnir heitar George Valentine og Isacc Miles.
Á Tindastóll.is segir að Valentine sé ætlað að leysa miðherjastöðuna en hann hefur undanfarin ár leikið með Winthorp háskólanum og á sínu síðasta ári var hann með 8.4 stig og 7.9 fráköst að meðaltali.
Isacc Miles er hins vegar leikstjórnandi og skotbakvörður og kemur úr Murray State háskólanum.
Tölfræði þeirra George og Isacc ásamt myndböndum má nálgast á Tindastóll.is
Von er á köppunum í byrjun september.