Vann í getraun Landsbankans

Benedikt A. Árnason  sigraði í jólagetraun Landsbankans á Sauðárkróki 2012 en hún fór fram í opnu húsi hjá Landsbankanum þann 1. desember  sl. þegar kveikt var á jólatrénu á Kirkjutorgi. Getraunin gekk út á að giska á fjölda sælgætismola í krukku.

Alls voru 178 manns sem tóku þátt í getrauninni og voru ýmsar ágiskanir sem komu fram en Benedikt taldi að molarnir væru alls 574 sem er mjög nærri lagi en réttur fjöldi var 576 molar.

Á meðfylgjandi mynd er sigurvegarinn með verðlaunin sem voru  kr. 15.000 á gjafakorti.

Fleiri fréttir