Varð við áskorun um breyttan opnunartíma
Félags- og tómstundarnefnd Svf. Skagafjarðar hefur orðið við áskorun um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar á Hofsósi og samþykkti tillögu Frístundastjóra um að hafa laugina opna frá kl. 9 – 21 alla daga vikunnar í sumar, þ.e. frá 1. maí - 31. ágúst. Breyting á opnunartíma er háð formlegu samþykki frá Sveitarstjórn.
Í bókun frá 185. fundi nefndarinnar þann 11. maí sl. segir:
„Frístundastjóri leggur til að sundlaugin verði opin í sumar, frá 1. maí - 31.ágúst, alla daga frá klukkan 9 - 21 og látið reyna á að rýmri opnun, meiri markaðssetning og kynning á lauginni muni skila henni enn meiri tekjum sem réttlæti lengri afgreiðslutíma. Félags-og tómstundanefnd samþykkir tillöguna. Ákveðið er að fara yfir árangur þessa markaðsátaks og áhrif á fjárhagsáætlun að loknu sumri.“
Hér má sjá opið bréf til stjórnar Svf. Skagafjarðar og birt var á Feyki.is í síðustu viku.