Veðurstofan tekur nýjan veðurvef í gagnið
RÚV.is segir frá því að Veðurstofan hefur uppfært vefsíðu sína Veður.is og er síðan tvímælalaust aðgengilegri og mikilvægar upplýsingar eiga að vera skýrari á vefnum. Viðmót vefsins er breytt og þar er hægt að finna veðurspár fyrir fleiri staði, fleiri möguleika í kortasjá og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá.
Veðurstofan hefur uppfært vefsíðu sína, vedur.is. Mikilvægar upplýsingar eiga að vera skýrari og aðgengilegri á vefnum, sem er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar.
Viðmót vefsins er breytt og þar er hægt að finna veðurspár fyrir fleiri staði, fleiri möguleika í kortasjá og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá. Þannig er hægt að þysja inn á veðurkortið og koma þá upp mun fleiri veðurstöðvar en áður. Þannig er til dæmis hægt að sjá veðrið í Varmahlíð, á Hólum, Hofsósi, Skagaströnd, Hvammstanga og Borðeyri.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður vefurinn endurnýjaður í áföngum. Í dag fara í loftið síður sem notendur nota mest: veðurpár, jarðskjálftagögn, viðvaranir, tilkynningar frá sólarhringsvaktinni og fréttir.
Prufuútgáfa nýja vefs Veðurstofunnar hefur verið í boði á vefslóðinni gottvedur.is. Eldri vefur Veðurstofunnar er enn aðgengilegur á vefslóðinni eldri.vedur.is
Feykir kannaði vefinn ötlítið áður en fréttin var skrifuð og leist nokkuð vel á nema það var ekki boðið upp á annað veður en alskýjað hér á Norðurlandi vestra nú um þrjú leytið. Vonandi verður fjölbreytnin eitthvað meiri næstu daga...
