„Vegir liggja til allra átta“ í Iðnó á sunnudaginn

Guðrún Ásmundsdóttir og Alexandra Chernyshova verða með uppákomu sem þær nefna „Vegir liggja til allra átta“ á sunnudaginn 13. maí í Iðnó kl. 20:00. Á uppákomunni verða fluttar sögur og ljóð og sungin tónlist.

Flytjendur eru:

  • Eyvindur Erlendsson sem verður heiðursgestur kvöldsins
  • Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
  • Haukur Guðlaugsson pianóleikari
  • Alexandra Chernyshova sópran
  • Þórhallur Barðason baritón
  • Luca Brembilla gítarleikari
  • Cornelia Zambila fiðluleikari

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir