Vel heppnað skvísupartý

Síðastliðinn föstudagskvöld var haldið á Mælifelli á Sauðárkróki konukvöld til styrktar körfuknattleiksdeildar Tindastóls. Alls mættu um hundrað og þrjátíu konur ákveðnar í að skemmta sér. Hinn eini sanni Siggi Hlö mætti á gullskóm og hélt uppi stemmingunni eins og honum einum er lagið.

-Þetta heppnaðist vonum framar. Við spiluðum Bingó, Guðný Axels var með drepfyndinn pistil þar sem hún kenndi konum, m.a. að pissa upp á hálendinu, síðan komu strákarnir úr körfunni og dönsuðu Zumba undir öruggri stjórn Raggíar og verð ég illa svikin ef ekki fjölgar konum á leikjunum eftir þetta atriði, segir Hólmfríður Sveinsdóttir ein skipuleggjenda kvöldsins.

-Síðan kom Soffía frá Undirföt.is og kynnti nýjasta nýtt í nærfötum. Eftir hlé byrjaði happadrætti þar sem drengirnir í körfunni mokuðu út happadrættismiðum og færðu síðan vinningshöfum vinningana ásamt því að knúsa þá. Eftir happadrættið komu svo Molduxarnir og fylltu loftið af testósteróni eins og þeim einum er lagið og sungu nokkur lög með heimagerðum textum. Eftir konukvöldið var svo slegið upp balli og dansað fram á nótt. Mig langar til að þakka Kristínu Elfu á Mælifellinu sérstaklega fyrir alla hjálpina og að láta okkur hafa húsið undir þetta. Einnig þeim sem komu og voru með skemmtiatriði og síðast en ekki síst, öllum þeim frábæru konum sem komu og voru ákveðnar í að skemmta sér, segir Hólmfríður sem vill koma því á framfæri að með henni í þessu stússi voru þær Elín Gróa, Ásta Guðný, Helga Eyjólfs og Lóa. -Fyrir hönd körfuknattleiksdeildar þá þakka ég öllum kærlega fyrir stuðninginn.

Fleiri fréttir