Verður sundþjálfari hjá Tindastóli
Ingunn Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem sundþjálfari hjá Sunddeild Tindastóls. Ingunn er 22 ára gömul og æfði sjálf sund hjá deildinni frá árinu 2002-2007. „Eins og hún segir sjálf hefur hún áhuga á heilsu og hreyfingu og elskar að synda,“ segir á heimasíðu Tindastóls.
Ingunn er dóttir Sigríðar Ingimarsdóttur og Kristjáns Kristjánssonar en samkvæmt heimsíðunni býr hún í Flórída yfir veturinn og er í námi sálfræði og leiklist. Hún hefur tekið námskeið í heilsu og hreyfingu og hóp fitness.