Verkefnalisti lögreglunnar á Sauðárkróki

Undanfarið hafa verkefni lögreglunnar á Sauðárkróki verið mörkuð af veðurfari þar sem nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp, slysalaus að mestu en eignatjón nokkuð. Þetta kemur fram á verkefnalista lögreglunnar sem birtist á heimasíðu hennar, logreglansaudarkroki.is. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út nokkrum sinnum vegna verkefna sem komið hafa inná borð lögreglu sem er afar þakklát björgunarsveitum og stoltir yfir að hafa slíkar sveitir til aðstoðar.

Í svo miklu fannfergi sem nú er segir lögreglan að búast megi við að búfé sem komið er heim á bæi losni úr aðhaldi og ráfi uppá vegi þar sem girðingarnar eru á kafi í snjó. Vill lögreglan brýna fyrir ökumönnum að tilkynna lögreglu um lausagöngu búfjár svo bregðast megi við þeim aðstæðum og þar með hugsanlega koma í veg fyrir slys og óhöpp.

Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af ökumönnum undanfarið vegna lélegs ljósabúnaðar en þar er oftast um að ræða biluð ljós, sprungnar perur en einnig vegna of mikils ljósagangs þar sem ekki er heimilt að vera með kastara eða önnur aukaljós innanbæjar. Lögreglan

hefur einnig haft eftirlit með ástandi ökumanna og hafa langflestir verið í lagi í þeim könnunum en tveir hafa verið kærðir undanfarið vegna ölvunar við akstur og munu þeir að öllum líkindum fá háar sektir og eins munu þeir að líkindum missa ökuréttindin um hríð.

Þá hafa nokkur mál vegna eignaspjalla komið upp og hafa þau verið upplýst og má segja að þau séu í hefðbundnum farvegi slíkra mála.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir