Verkleg námsvika í fiskeldi og fiskalíffræði við HÍ á Hólum

Frá námsvíkunni. MYND AF HÓLAR.IS
Frá námsvíkunni. MYND AF HÓLAR.IS

Í október síðastliðnum stóð Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskóla Íslands á Hólum fyrir spennandi verklegri námslotu þar sem saman komu nemendur úr diplómanámi í fiskeldi, grunnnámi og meistaranámi í Aquatic Biology.

Í frétt á heimasíðu Hóla segir að markmið þéttsettrar námsviku hafi verið að færa námið út fyrir kennslustofuna og gefa nemendum tækifæri til að öðlast hagnýta reynslu af mælingum á vatnsgæðum, framkvæmd tilrauna og úrvinnslu gagna.

David og Paul, kennarar við deildina í námskeiðunum Fish and Water and Fundamentals for Studying Aquaculture Organisms, ásamt Marie, aðstoðarmanni við rannsóknir og kennslu, leiðbeindu nemendum í gegnum fjölbreytt verkefni. Nemendur kynntust meðal annars samspili ólíkra vatnsgæðabreyta og mikilvægi þeirra fyrir heilbrigði fiska í fiskeldiskerfum.

Nánar má lesa um þetta á Hólar.is >

Fleiri fréttir