VG með fund í kvöld
Í dag, fimmtudag 12. janúar, verða þingmenn og varaþingmenn VG á ferðinni í Skagafirði og sækja heim stofnanir og fyrirtæki. Munu þau funda með byggðaráði, kynna sér starfsemi í Verinu, heimsækja Iceprotein, Hólaskóla, Flokku og fleiri staði.
Bjarni Jónsson, Lilja Rafney og Kolbeinn Proppé verða svo með opin fund á Kaffi Krók í kvöld kl: 20 þar sem allir eru velkomnir.