Við erum komin heim!

Hjónin Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson eru loksins komin heim til Íslands með dætur sínar Helgu Karólínu og Birnu Salóme eftir langan og erfiðan tíma í Kólumbíu. Þau lögðu af stað sl. þriðjudagskvöld með Lufthansa til Frankfurt þar sem þau gistu eina nótt og komu svo heim með Icelandair í gær. Við komuna til Íslands beið fjölskyldan eftir þeim á flugvellinum og urðu miklir fagnaðarfundir.

Á bloggfærslu fjölskyldunnar segir að stelpunum hafi þótt mjög gaman að hitta alla ættingja sína en haldin var stór veisla í tilefni af komu þeirra Helgu og Birnu til landsins.

„Þetta er búið að vera hreint út sagt alveg meiriháttar dagur. Við erum svo glöð að vera komin heim með dætur okkar. Okkur finnst við vera svo óendanlega rík og erum svo þakklát fyrir yndislegu stelpurnar okkar. Loksins eru þær komnar heim til Íslands þar sem þær eiga heima, komnar með dótið sitt, rúmið sitt, föt sín og allt sem þeim vantar. Lífið er fullkomið!

Kæru vinir við viljum þakka ykkur fyrir stuðninginn, allar fallegu kveðjurnar og hvatningarorðin, án ykkur hefðum við ekki getað gert þetta. Það hefur oft verið sagt að það sé gott að vera Íslendingur þegar eitthvað bjátar á og gætum við ekki verið meira sammála því.

Kærar kveðjur
Friðrik og Bjarnhildur“

Fleiri fréttir