Viðræður á lokastigi með áætlunarflug á Sauðárkrók
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur í nokkurn tíma átt í viðræðum við flugfélagið Air Arctic, áður Eyjaflug, um að hefja áætlunarflug til Sauðárkróks en því var hætt fyrir um ári síðan. Undirbúningur er á lokastigi en boltinn er nú hjá innanríkisráðherra sem þarf að taka ákvörðun um það hvort vilji er hjá stjórnvöldum til að leggja 10 millj. króna í flugið á ári annars vegar og svo hins vegar hvort settir verði þeir fjármunir sem þarf til að opna Sauðárkróksflugvöll aftur sem áætlunarflugvöll.
Stefán Vagn Stefánsson formaður byggðaráðs segir í viðtali í Feyki að það skýrist í dag hvort stjórnvöld séu tilbúin til að fara þessa vegferð með Skagfirðingum en þau voru tilbúin á síðasta ári til að leggja verkefninu lið með 10 millj. króna framlagi.
-Við erum að vonast til að fá fjármuni í verkefnið fyrir 2013 þó ekki sé gert ráð fyrir því í fjárlögum. Sveitarfélagið hefur lýst vilja sínum til að koma að þessu með einhverjum hætti m.a. mögulega að tryggja ákveðinn sætafjölda, segir Stefán sem telur bæði sveitarfélagið og flugfélagið búið að gera allt klárt sín megin. Hann hefur trú á því að ef Isavia opnar Alexandersflugvöll á ný þá muni Air Arctic hefja áætlunarflug þrátt fyrir að samningarnir hafi ekki náðst um þær 10 milljónir sem um ræðir.
Ef af verður er áætlað að fljúga 7 ferðir í viku. Tvo daga verður flogið snemma á morgnana frá Reykjavík og heim aftur eða kl. 7:45 og til baka kl. 17:00.
Nánar er sagt frá málinu í Feyki sem kom út í gær.