Viðtal við stofnendur hljómsveitarinnar Fúsaleg Helgi.

Fúsaleg Helgi

Fjöllistahópurinn hjá Vinnuskóla Sklagafjarðar fór á stúfana og hitti meðlimi hlómsveitarinnar Fúsaleg Helgi og lagði fyrir þá Fúsa og Helga nokkrar spurningar. Krakkarnir í fjöllistahópnum heita Fannar Arnarsson, Laufey Rún Harðardóttir og Gísli Þráinn Kristjánsson.

 

 

 

 

 

Við fórum niðrí Loðskinn þar sem að Fúsaleg Helgi er með æfingarsvæði, hittum þar Fúsa og Helga Sæmund og spjölluðum við þá. Helgi og Fúsi eru í tveimur böndum sem eru Bróðir Svartúlfs og Fúsaleg Helgi, strákarnir æfa á hverju kvöldi niðrí Loðskinn og gengur bara ótrúlega vel með báðar hljómsveitir, Bróðir Svartúlfs vann náttúrulega Músíktilraunir og fékk þá gríðarlega umfjöllun, við ákváðum að koma með smá umfjöllun um Fúsaleg Helgi.

 

 

  1. Er erfitt að koma upp hljómsveit á Sauðárkróki? Maður verður bara að þekkja einhvern annan sem er að spila, ef þú átt vini sem eru í músík þá er það ekkert mál, ef þú þekkir engan þá er það erfiðara. Þá er bara að skrá sig í tónlistarklúbbinn.

 

  1. Er góð aðstaða fyrir hljómsveitir hér á Króknum? Já, miðað við íbúafjölda þá er góð aðstaða uppí skóla og í Húsi frítímans. Sveitarfélagið er búið að vera mjög opið fyrir öllu svona.

 

  1. Hvað kallast tónlistarstefnan sem að Fúsaleg Helgi spilar ? Kántrý / blús / Ambient.

 

  1. Hvernig gengur með bandið ? Gengur ótrúlega vel miðað við að við erum í Bróðir Svartúlfs , við áttum ekki von á að geta haldið í Fúsaleg Helgi eins og við vorum að gera en fólk er að taka vel í þetta og fílar bandið. Þetta er svo líbó , tónlist til að spjalla við, drekka, slaka á, slást og allt mögulegt.

 

  1. Eru þið að fá einhverja styrki? Sparisjóðurinn styrkti Bróðir Svartúlfs og ætlar að gera það meira en við erum að fara að sækja um í styrk í menningarsjóð,  fólk er mjög jákvætt fyrir að gefa peninga í þetta.

 

  1. Eigum við von á disk frá ykkur? Það er bókað mál, vitum ekki alveg hvenær en þegar að tími gefst til þá eigum við efni í disk. Markmiðið er að koma út disk í vor.

 

  1. Hvað er uppáhalds giggið ykkar? Á Jónsmessu í Höfðaborg 2008, gekk ótrúlega vel fólk var svo líbó, hresst , stóð upp og klappaði og í Bifröst laugardagkvöldið 20. júní. Það var alveg geggjað.

 

  1. Hvernig varð bandið til? Það var í seinnipart 2007,  fyrir söngkeppni FNV 2008, við vildum gera blúslag fyrir keppnina sem var vel tekið og við tókum það upp. Vorum bara 2 þá en svo fyrir tónleika sem við héldum í apríl á Mælifell 2008 datt okkur í hug að hafa “stórsveit” og við hringdum í Nonna og Sævar og þá varð Fúsaleg Helgi til eins og hún er núna.

 

  1. Hvernig gengur ykkur að vera í tveimur böndum? Gengur býsna vel, vorum búnir að sjá fram á að Fúsaleg Helgi myndi detta upp fyrir, en svo eru alveg 7 kvöld í viku sem við höfum til að æfa og við náum alveg að æfa nóg fyrir báðar hljómsveitir.

 

  1. Er þetta eitthvað sem að þið ætlið að halda áfram að gera í framtíðinni? Já. Þetta er lífið. Veitir manni ánægju og fyllingu í lífið.

 

  1. Hver er uppáhalds tónlistarmaðurinn ykkar?

            Helgi: Tom Waits, Leonard Cohen og Bruce Springsteen

Fúsi: Kurt Cobain, Jeff Buckley, Eric Clapton og Stevie Ray.

 

  1. Er svo planið að taka þátt í undankeppni Eurovision? Ég var einmitt að hugsa um þetta í dag og ég ætla að gera það, Fúsi vill það ekkert, en á örugglega eftir að gera það einhvern tíman.

 

  1. Í hvernig sokkum eru þið?

            Fúsi: Svartir og snúa á röngunni.

Helgi: Svörtum sokkum úr Dressman.

 

Fleiri fréttir