Vígði nýtt sjósund í gær

Benedikt S. Lafleur vígði nýtt sjósund, sjósundleið í Skagafirði sem hann nefnir Hegranessund. Sundið nefnir hann eftir Hegranesvitanum, en þaðan synti hann í gær, fyrstur manna, alla leið inn í Sauðárkrókshöfn. Vegalengdin er ca 5,2-5,5 km.

Ferðin tók Benedikt lengri tíma en áætlað var eða tæpa 3 tíma í stað 2-2,5 klst. Fyrri hluti sundsins skot gekk og Benedikt þaut áfram og synti hann á 1 klst en átt í basli með þann seinni vegna hafgolu sem óx úr algjöru logni og vann þvert gegn sundleið Benedikts.

-Ég þurfti stundum að synda 6-8 sundtök af krafti án þess að anda. Og þegar ég var orðinn verulega pirraður á því að komast vart áfram brá ég á gamla trixið mitt að synda kröftugt kafsund, það klikkar aldrei við svona aðstæður, segir Benedikt en hann var mest hissa á því að hann skyldi ekki vitund finna fyrir kalda álnum úr ósi Héraðsvatnanna, en honum fylgir gjarna mikill straumur.

-Ég hafði hins þann varann á að fara í háflóði til að vega á móti útstreymi álsins. Hins vegar sé ég að ég hefði mátt halda fyrr af stað til að sleppa við hina erfiðu hafgolu, segir Benedikt reynslunni ríkari.

Björgunarsveitin Skagfirðingasveit fylgdi Benedikt allt sundið og stóð sveitin sig mjög vel   að sögn sundkappans, ekki síst síðasta spölinn, þar sem hún beitti gömlu bragði til að hvetja Benedikt áfram.

Sjálfum fannst Benedikt sundið ekki síður erfitt eða jafnvel erfiðara en Grettissundið sem hann synti árið 2009, vegna hafgolunnar.

-Ef mér hefði tekist að sleppa við hana hefði þetta verið mjög fínt æfingasund fyrir Drangeyjar- eða Grettissund.

Hegranessundið er æfingasund Benedikts nr. 2 fyrir meiriháttar afrekssund en næsta æfingasund er Grettis- eða Drangeyjarsund. Eftir það meiriháttar afrekssund eins og Benedikt orðar það.

Fleiri fréttir