Víkingar höfðu betur einum fleiri
Tindastóll sótti Víking Ólafsvík heim í dag og rétt eins og venjulega hefði verið skemmtilegra að vinna leikinn en það gekk ekki eftir. Lið Víkings er sterkt og hafði að lokum sigur í leiknum, 2-1, og tyllti sér þar með á topp 1. deildar.
Leikið var við fínar aðstæður á Ólafsvík en bæði lið fóru rólega af stað. Tindastólsmenn voru þó heldur sterkari í fyrri hálfleik, spiluðu ágætlega og sköpuðu sér nokkur ágæt færi. Stöðva þurfti leikinn þegar talsvert var liðið á fyrri hálfleik þegar Edvard Óttharsson, varnarjaxl í liði Stólanna, fékk þungt höfuðhögg. Annað skiptið í síðustu tveimur leikjum sem liðsmenn Tindastóls fá þungt höfuðhögg og í bæði skiptin hefðu höggveitendur mótherjanna mátt fjúka út af. Leikurinn tafðist um fimm mínútur en Stólarnir virtust hafa haft gott af hvíldinni því Max Touloute skoraði laglegt mark á 41. mínútu, fékk boltann inn fyrir vörn Víkings frá Steven Beattie og kláraði færið vel. Strax á eftir fengu Stólarnir gott færi til að auka muninn en færið fór forgörðum. Á 45. mínútu urðu hins vegar kaflaskil í leiknum því þá vísaði Halldór Breiðfjörð dómari Edvard Óttharssyni af velli eftir að leikmaður Víkings var við það að sleppa í gegnum vörn Tindastóls. Edvard renndi sér í boltann og síðan í manninn og því spurning hvort dómarinn hafi ekki gert slæm mistök.
Víkingsliðið var sterkari aðilinn í síðari hálfleik, pressuðu lengstum af krafti en Stólunum gekk illa að halda boltanum einum færri. Sebastian Furness varði vel í markinu en átti ekki möguleika þegar Guðmundur Steinn Hafsteinsson skallaði glæsilega í mark Stólanna á 58. mínútu og jafnaði þar með metin. Hann var síðan aftur á ferðinni á 84. mínútu og tryggði heimamönnum sigurinn í leiknum. Skúffelsi fyrir Stólana sem höfðu lengstum varist vel í síðari hálfleik og að mestu komið í veg fyrir að heimamenn fengju dauðafæri.
Bestur í liði Tindastóls í dag var Sebastian Furness. Í fyrri hálfleik var Max Touloute sprækur, en hann fór af velli meiddur í hálfleik, og Dominic Furness var vel spilandi. Þrátt fyrir tvö töp í röð eru Stólarnir í sjöunda sæti deildarinnar með 14 stig en það eru aðeins tvö stig í neðsta sætið. Það verður því mikið undir þegar BÍ/Bolungarvík, sem er með 13 stig í 10. sæti, kemur á Krókinn næstkomandi miðvikudagskvöld 1. ágúst en leikurinn hefst kl. 18:00. Allir á völlinn og áfram Tindastóll!