Vilja breyta reglum um úthlutun byggðakvóta

„Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd mótmælir harðlega niðurstöðum úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019-2020 hvað varðar úthlutun til Hofsóss. Niðurstaða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis hvað Skagafjörð varðar er að úthluta aðeins 15 þorskígildistonnum til Hofsóss og 140 þorskígildistonnum til Sauðárkróks.“ Þannig hefst bókun nefndarinnar frá fundi gærdagsins en þar kom fram að Sauðárkróki er úthlutað 140 þorskígildistonnum en Hofsós aðeins 15 þorskígildistonnum.

Leggur nefndin til nokkurra breytinga á reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2019/2020 í Sveitarfélaginu Skagafirði, m.a. að fiskiskipum verði skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðarkvóta innan sveitarfélagsins. Þá vill nefndin fella niður þá skyldu þeirra sem fá úthlutað byggðakvóta til að landa tvöföldu því magni sem þeir fá úthlutað til vinnslu, líkt og kveðið er á um í 6. grein reglugerðarinnar.

„Niðurstaða þessi er með öllu óásættanleg hvað varðar úthlutun til Hofsóss og ljóst að reglur um úthlutun byggðakvóta mæta engan veginn tilgangi þess að úthluta byggðakvóta til byggðarlaga sem standa höllum fæti, s.s. eins og til Hofsóss. Það punktakerfi sem úthlutað er eftir horfir aftur síðustu 10 ár og mælir samdrátt aflaheimilda og vinnslu á þeim tíma en tekur í engu tillit til þess að samdráttar sem orðið hefur fyrir lengri tíma en 10 árum. Má því ætla að reglur sjávarútvegsráðuneytisins geri ráð fyrir að annað hvort hafi sjómenn gefist upp á þessum tíma eða þá að ástandið hafi lagast með öðrum hætti, en alls ekki að ástand geti verið óbreytt eða verra en áður eins og í tilfelli Hofsóss, sérstaklega þegar horft er til úthlutunar byggðakvóta til Hofsóss, en úthlutun byggðakvóta fiskveiðiárið 2010-2011 var 145 þorskígildistonn en nú fiskveiðiárið 2019-2020 einungis 15 þorsksígildistonn eða samtals 89,7% samdráttur á 9 árum.

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að breyta reglum um úthlutun byggðakvóta á þann hátt að tekið verið tillit til lengri tíma og fleiri aðstæðna en núverandi reglur kveða á um. Mikilvægt er að reglur um byggðakvóta séu raunverulega sniðnar að því markmiði að styðja við byggðir sem standa höllum fæti vegna breytinga í sjávarútvegi,“ segir í bókun atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir