Vilja endurmat gilda í íslenskum stjórnmálum
Félagar í Samfylkingarfélaginu í Skagafirði gera kröfu um endurmat gilda og breyttar áherslur í íslenskum stjórnmálum. Stjórnvöld verði að sýna almenningi þá virðingu að leggja málin fram fyrir þjóð og þing. Krafan er að þau samræðustjórnmál sem Samfylking stendur fyrir verði ástunduð af íslenskum stjórnvöldum.
Kom þetta meðal annars fram í ályktun frá fundi Samfylkingarfólks í Skagafirði í gær. Jafnframt segir að
tafarlaust þurfi að hreinsa til í stjórn- og fjármálakerfum þjóðarinna svo þau verði hafin yfir allan grun um spillingu. Efnahags- og atvinnustefnu þjóðarinnar verði að endurskoða og hleypa í hana nýju blóði með jafnræði, nýsköpun og frumkvæði. Þá segir að grunngildi Samfylkingarinnar séu jöfnuður, ábyrgð og samstaða. Virk og almenn þátttaka í stjórnmálum á öllum vettvangi sé brýnni en nokkru sinni. Virkt lýðræði sé forsenda þess endurmats og þeirra endurbóta, sem verði varanleg breyting til batnaðar fyrir íslenskt samfélag.