Vilja kaupa golfhermi
Mikill áhugi er fyrir því að fjárfesta í gólfhermi á meðal nokkurra félaga Golfklúbbs Sauðárkróks. Samkvæmt heimasíðu GSS er sá hermir sem kemur helst til greina af gerðinni Double Eagle DE3000 sem sagður er vera einn sá besti sem völ er á. Heildarkostnaður vegna hermisins og uppsetningar hans er um 5 milljónir króna.
„Í herminum er hægt að spila marga heimsþekkta golfvelli og er grafík eins og best verður á kosið. Einnig er afar mikilvægt að nútíma golfhermar gefa mjög raunhæfa mynd af sveiflu og raunverulegri getu. Þetta er því ekki bara tölvuleikur, heldur tæki til að bæta sig í golfi,“ segir í bréfi til félagsmanna GSS.
Ákveðið hefur verið að kanna áhuga félagsmanna um að stofna áhugamannafélag um kaup á slíkum hermi en með jákvæðum viðbrögðum félagsmanna er talið að hægt verði að greiða upp herminn á u.þ.b. 5 árum.
„Ljóst er að einungis verður hægt að festa kaup á slíku tæki með samstilltu átaki margra. Jafnframt er mikilvægt að hefjast þegar handa, þannig að hermirinn geti verið kominn í gagnið fyrir áramót,“ segir í bréfinu.
Á heimasíðu GSS má lesa bréfið í heild sinni, ásamt nánari útlistun á hvernig hermirinn yrði fjármagnaður.