Vinnsluholan að Reykjum var vígð í dag
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
13.06.2025
kl. 20.02

Frá vígslunni í dag. Frá vinstri: Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Rarik, Árni Magnússon, forstjóri ÍSOR, Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar og Óli Þór Jónsson, rekstrarstjóri hitaveita hjá Rarik skáluðu í hitaveituvatni og kannski einhverju fleiru. MYNDIR: AXEL ÞÓRHALLSON / RARIK
Ný vinnsluhola, RR-38, var formlega vígð í dag, föstudaginn 13. júní, að Reykjum í Húnabyggð. Þar með lýkur umfangsmiklu verkefni sem hófst árið 2021 með það markmið að auka afkastagetu hitaveitunnar og tryggja nægjanlegt framboð á heitu vatni fyrir ört vaxandi eftirspurn á svæðinu.