Vinnuvaka fellur niður vegna ófærðar

Kvenfélagasamband Skagafjarðar er með árlega vinnuvöku þ.e. basar og kaffisölu til styrktar ýmsum málefnum. Í ár átti vinnuvakan að vera á Löngumýri 4. nóvember kl. 15. Samkvæmt fréttatilkynningu frá Kvenfélagssambandinu verður því miður ekki af vinnuvökunni núna vegna ófærðar.

„Síðar þegar veður batnar verður hægt að kaupa steiktar laufabrauðskökur af Kvenfélögunum og ágóðinn rennur allur til Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki vegna kaupa á sjúkrarúmum,“ segir í fréttatilkynningunni.

 

Fleiri fréttir