Vísindi og grautur á Hólum

Dr. Lára Magnúsardóttir heldur fyrirlestur á Hólum í Hjaltadal á morgun, miðvikudaginn 9. maí, en fyrirlesturinn er hluti af Vísindi og graut, árlegri fyrirlestraröð ferðamáladeildar Háskólans á Hólum.

Lára er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra sem hefur aðsetur á Skagaströnd. Hún mun flytja fyrirlestur undir yfirskriftinni: „Menning og ferðaþjónusta eru málefni sem þarf að rannsaka saman.“

Fyrirlesturinn hefst kl. 11:15 í stofu 303 í Hólaskóla.

Fleiri fréttir