Völsungsstelpurnar fóru heim með stigin þrjú

Síðastliðið miðvikudagskvöld mættust kvennalið Tindastóls og Völsungs á Sauðárkróksvelli í b-riðli 1. deildar kvenna. Stólurnar höfðu náð fínum úrslitum í báðum heimaleikjum sínum í sumar en nú voru það gestirnir sem fóru heim með stigin þrjú en Húsvíkingar sigruðu með tveimur mörkum gegn engu.

Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir gerði fyrsta mark leiksins á 20. mínútu og hún bætti síðan við öðru marki skömmu fyrir leikslok.

Lið Tindastóls hefur spilað sex leiki í sumar, unnið tvo en tapað fjórum og sitja sem stendur í 7. sæti með 6 stig en óheppilega markatölu. Á morgun, laugardaginn 30. júní, fá stelpurnar tækifæri til að laga stöðu sína í deildinni en þá mætir lið BÍ/Bolungarvíkur á Krókinn og hefst leikurinn kl. 13:00.

Fleiri fréttir