Vormót Molduxa 2012

Hið árlega vormót Molduxa  í körfuknattleik verður  haldið laugardaginn 5. maí. 2012. Mótið er fyrir körfuknattleikslið  40 ára og eldri hjá körlum og fyrir kvennalið 20 ára og eldri.

Stefnt er að því að mótið byrji kl.  12 á laugardegi og er leiktíminn 2 x 12 mín. og leikur hvert lið 3- 4 leiki.

Verðlaunaafhendingar og léttar veitingar verða  að móti loknu og sameiginlegur kvöldverður  er fyrirhugaður kl. 20.00, þar sem æskilegt er að heimatilbúin óritskoðuð skemmtiatriði  líti dagsins ljós  hjá mótsgestum  í  gleði  sem mun standa fram á nótt með léttum Molduxum.

Hægt er að skrá lið og fá nánari uppl. hjá Alla Munda á allimunda@internet.is  eða í síma 865 0819 og lýkur  skráningu 25. apríl. Þess skal getið að mótið er hluti af sæluvikugleði í Skagafirði þannig að nóg er um að vera um þessa helgi á Sauðárkróki.

Sjá nánar á heimasíðu Molduxa

Fleiri fréttir