feykir.is
Skagafjörður, Lokað efni
07.11.2024
kl. 12.08 oli@feykir.is
Á fundi skipulagsnefndar Skagafjarðar var í byrjun október tekin fyrir umsókn frá Kaupfélagi Skagfirðinga um lóðir eða svæði austan við Aðalgötu 16b þar sem áður var Minjahús Skagafjarðar. Húsið var gert upp og stækkað og þar eru nú 28 vel búin herbergi ætluð m.a. starfsmönnum sem starfa hjá KS í sláturtíðinni. Fram kemur í fundargerðinni að Kaupfélagið sjái fyrir sér að fjölga gistirýmum á reitnum þannig að þar verði a.m.k. 50 herbergi og hótel rekið á ársgrundvelli.
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Hestar, Lokað efni
07.11.2024
kl. 09.59 oli@feykir.is
Uppskeruhátíð æskulýðsdeildar Skagfirðings fór fram sunnudaginn 3. nóvember sl. þar sem veitt voru verðlaun fyrir gott keppnistímabil. Pollarnir fengu öll þátttökuverðlaun fyrir flottan árangur og alveg ljóst að framtíðin er björt hjá Hestamannafélaginu Skagfirðing með alla þessa efnilegu og flottu knapa.
Frá því kvótakerfið var lögfest árið 1983 hefur okkur aldrei tekist að uppfylla markmið kvótakerfisins, sem var að auka veiði. Árin fyrir lögfestingu kvótakerfisins veiddust yfirleitt um 400.000 tonn af þorski á ári og studdum mun meira, en síðan kvótakerfið tók gildi þá heyrir það til undantekninga að þorskaflinn nái yfir 200.000 tonn.
„Ameríkanar eru klikk!“ sagði Steinríkur þegar hann og Ástríkur höfðu kynnst heimamönnum eftir að hafa óvart rambað á þessa sérkennilegu nýju heimsálfu. Það er ekki alveg pottþétt að hann hafi haft rétt fyrir sér en heldur ekki ómögulegt..
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir, Lokað efni
06.11.2024
kl. 16.14 oli@feykir.is
Knattspyrnudeild Tindastóls hélt lokahóf sitt í Ljósheimum laugardagskvöldið 5. október en í sumar átti Tindastóll lið í Bestu deild kvenna og 4. deild karla og gekk þeim báðum vel. Að venju voru bestu leikmenn, þeir efnilegustu og bestu liðsfélagarnir valdir og hjá stúlkunum var María Dögg Jóhannesdóttir velin best og Josu Ibarbia hjá strákunum.
Gamalkunnugur gestur er mættur í veðurspá Veðurstofunnar eftir nokkrar fjarveru, nefnilega appelsínugula viðvörunin. Um átta í fyrramálið hvessir duglega hér á Norðurlandi vestra en gul viðvörun er fram að hádegi en þá bætir í vindinn og tekur sú applesínugula við um hádegi og stendur fram á kvöld.
Nú eru rúmar þrjár vikur þar til kosið verður til Alþingis. Hér í Norðvesturkjördæmi verða tíu listar á atkvæðaseðlinum. Reiknað var með ellefu framboðum en Græningjum tókst ekki að setja fram lista hér frekar en annars staðar á landinu. Það er næsta víst að það eiga ekki allir heimangegnt á kjörstað 30. nóvember og þurfa því að kjósa utan kjörstaðar. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst fimmtudaginn 7. nóvember.
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning, Lokað efni
06.11.2024
kl. 09.56 oli@feykir.is
Einn af föstum viðburðum Heimilisiðnaðarsafnsins er að halda fyrirlestur eða fyrirlestra sem fara oftast fram á haustdögum og nú laugardaginn 26. október sl. Í þetta sinn ræddi Jón Torfason, sagnfræðingur, um fatnað almúgafólks á 18. og 19. öld.
Í lok október fór 64. Landsþingi Landssambands hestamannafélaga fram í Borgarnesi en fyrir þinginu lágu 40 mál. Fram kemur í tilkynningu frá LH að stjórn hafi verið kjörin til næstu tveggja ára. Unnur Rún Sigurpálsdóttir úr Hestamannafélaginu Skagfirðingi var ein hinna kjörnu og situr til ársins 2026. Linda Björk Gunnlaugsdóttir úr hestamannafélaginu Spretti var rétt kjörin nýr formaður og tekur hún við af Guðna Halldórssyni.
Þann 31. ágúst sl. skrifaði Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri grein á Feykir.is undir fyrirsögninni „Til hvers var landhelgin færð út?“ Hann byrjar á að fullyrða að í skýrslu frá Hafró frá 1972 hafi verið lagt til að tog- og dragnótaveiðar skyldu út fyrir 12 mílur fyrir Norður- og Austurlandi og 6 mílur fyrir Suður- og Vesturlandi. Hann talar um að skýrslan sé týnd og að Hafró hafi „snúið við skoðanablaðinu“. Hafró er vísindastofnun og er ekki með beinar skoðanir nema að þær séu byggðar á vísindum. Ég vona að veðurspárnar í tíð Magnúsar hjá Veðurstofunni hafi ekki verið byggðar á skoðunum veðurfræðinga.
Í nóvember 2023 efndu velunnarar Hólastaðar til ráðstefnu til heiðurs Jóni Bjarnasyni fyrrverandi skólastjóra og Ingibjörgu Kolka, konu hans. Ráðstefnan var vel sótt og öllum opin. Um sjötíu manns áttu fræðandi og skemmtilegan dag á Hólum. Fyrrverandi samstarfsmenn og nemendur Jóns og Ingibjargar á Hólum fluttu erindi og kennarar og vísindamenn skólans sögðu frá störfum sínum. Kjarninn í máli ræðumanna var að í tíð þeirra hjóna á Hólum, hefði tekist sérlega vel til við endurreisn skólans og að hann og Hólastaður hafi notið sannrar velvildar jafnt í heimahéraði sem og hjá stjórnvöldum. Á ýmsum sviðum hafi skólinn rutt brautina, einkum er varðar nám og rannsóknir í hestamennsku, ferðamálum og fiskeldi.
Við í Húnaþingi vestra stöndum vörð um okkar íbúa og hækkum hvorki gjaldskrár né fasteignagjöld á næsta ári. Leikskólagjöld standa í stað. Hitaveitan. Tónlistarskólinn. Allt.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir (1981) býr á Skagaströnd en var alin upp á Blönduósi, dóttir Raddýjar í bankanum og Svans frá Kringlu. Hugrún Sif er tónlistarséní, spilar á píanó, þverflautu, söngrödd, orgel og það sem til fellur – enda kennir hún í tónlistarskólanum og er organisti. Spurð út í helstu tónlistarafrek segir hún: „Ég get ómögulega valið einhver sérstök afrek en það sem stendur uppúr sem dýrmæt minning er að hafa sungið í Notre Dam kirkjunni í Frakklandi.“