Synjun Skagabyggðar um efnistöku í sveitarfélaginu stendur
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
16.04.2024
kl. 13.45
Kröfu Vegagerðarinnar um að snúa við synjun Skagabyggðar um efnistöku í sveitarfélaginu var hafnað af Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nú í byrjun apríl. Málavextir voru þeir að í október 2023 óskaði Vegagerðin eftir heimild Skagabyggðar til efnistöku á unnu efni í námu norðan Hvammkotsbruna sem nýtt yrði í sjóvarnir við Réttarholt á Skagaströnd. Heildarmagn grjóts og sprengds kjarna í verkið var áætlað allt að 1.500 rúmmetrar. Þrátt fyrir synjun Skagabyggðar um efnistöku í sveitarfélaginu hefur Vegagerðin nú þegar hafið flutninga á efni úr námunum.
Meira
