Í lok maí greindi Feykir frá því að tilnefningum til vígslubiskups í Hólaumdæmi lauk og 25 einstaklingar fengu tilnefningu og að Sr. Gísli Gunnarsson, sóknarprestur í Glaumbæjarprestakalli, fékk flestar tilnefningar.
Majesty: For the Realm er nýlegt tveggja til fjögurra manna spil Þar sem leikmenn eru að byggja upp sitt konungsdæmi í samkeppni við konungsdæmi hinna leikmannana. Leikmenn nota peð til kaupa persónur til að vinna fyrir sig. bruggari, verti, bakari og hefðarfólk er meðal þeirra sem leikmaður kaupir til sín. Hver leikur tekur 20 til 40 mínútur.
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við Adomas Drungilas um að leika með Tindastól næsta tímabil. Drungilas þekkja allir en hann varð Íslandsmeistari með Þór Þorlákshöfn vorið 2021.
Forsenda þess að umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið var samþykkt af ráðherraráði þess á sínum tíma var meðal annars sú að landið samþykkti meginreglur sambandsins um algert vald (exclusive competence) þess yfir sjávarútvegsmálum og um jafnan aðgang að fiskimiðum ríkjanna. Þetta kemur til að mynda skýrt fram í umsögn ríkisstjórnar Evrópusambandsins (framkvæmdastjórnarinnar) sem lá til grundvallar ákvörðun ráðsins.
Í lok kjörtímabils er eðlilegt að staldra við og skoða helstu áskoranir og möguleika sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir. Mikilvægt er að nálgast slíka umræðu af yfirvegun og raunsæi, með áherslu á framkvæmdahæfni, gagnsæi og bætt lífsgæði íbúa. Að setja markmið sem byggjast á raunhæfum fyrirætlunum skapar traust og gerir sveitarfélaginu kleift að vinna markvisst að umbótum. Í því samhengi vil ég benda sérstaklega á þjónustu við fjölskyldur, þróun fasteignagjalda og aðstöðu fyrir eldri borgara.
Landsfundur Sjálfsbjargar – landssambands hreyfihamlaðra, var haldinn í sal Sjálfsbjargar í Hátúni í Reykjavík, dagana 24. - 25. apríl. Landsfundurinn sendi frá sér ályktun þar sem segir: „Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hvetur landsfundur Sjálfsbjargar landssamband hreyfihamlaðra öll sveitarfélög til að gera úrbætur í aðgengismálum og fullnýta það fjármagn sem í boði er frá ríkinu til slíkra verkefna.“
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Páll Sigurður Björnsson býr á Hvammstanga en ólst upp á Bessastöðum í Hrútafirði. Páll sem er af árgangi 1972 hefur lært á ýmis hljóðfæri en þau sem hann spilar nú á eru trompet - sem hann segist þó vera slakur á-, píanó - sem hann væri til í að vera betri á - og bassi.