Fréttir

Akureyringar með rothögg á lokasekúndunni

Meiri verður dramatíkin varla á fótboltavellinum en í kvöld þegar lið Tindastóls og Þórs/KA mættust á Sauðárkróksvelli. Lið Tindastóls leiddi lengstum í leiknum en gestirnir tóku yfir leikinn í síðari hálfleik, jöfnuðu metin þegar um 20 mínútur voru eftir og gerðu síðan sigurmarkið bókstaflega með síðasta sparki leiksins – rothögg um leið og bjallan klingdi! Svekkjandi úrslit fyrir Stólastúlkur en kannski má segja að sigur Þórs/KA hafi verið sanngjarn að þessu sinni. Lokatölur 1-2.
Meira

Atli Dagur fær góða umsögn frá doktor í tónlist

Undankvöld Músíktilrauna fóru fram í vikunni sem er að líða í fjórum hlutum, eitt kvöld í senn. Atli Dagur Stefánsson frá Sauðárkróki kom fram á þriðja kvöldinu einn síns liðs, en komst því miður ekki áfram á úrslitakvöldið. Engu að síður fékk hann góða umsögn frá Dr. Arnari Eggert Thoroddsen, doktor í tónlistarfræðum, en hann skrifaði í morgunblaðið og á heimasíðu sína umsagnir um öll þau atriði sem komu fram á undankvöldum Músíktilrauna.
Meira

Veðjum á ungt fólk

Á þessu kjörtímabili hafa verið tekin stór framfaraskref í félagslegum málum. Lenging fæðingarorlofs í ár, hækkun atvinnuleysisbóta og lækkun kostnaðar sjúklinga eru nokkur dæmi um slík skref. Á næsta kjörtímabili þurfum við að halda áfram þessari vegferð í átt að sterkara og réttlátara samfélagi. Ég tel að við þurfum sérstaklega að huga að málefnum ungs fólks, einkum að húsnæðismálunum og menntamálunum.
Meira

Fyrsta framhaldsprófið í söng frá Tónlistarskóla Húnaþings vestra

Í gær voru haldnir burtfararprófstónleikar Elvars Loga Friðrikssonar í Blönduóskirkju en Elvar Logi þreytti framhaldspróf í klassískum söng undir leiðsögn Ólafs Rúnarssonar söngkennara og Elinborgar Sigurgeirsdóttur fv. skólastjóra og tónfræðikennara, og voru tónleikarnir hluti af því.
Meira

Íbúum Skagafjarðar bent á að stilla rafmagnsnotkun í hóf á laugardaginn

Vegna tengingar á nýjum jarðstreng til Sauðárkróks verður Skagafjörður keyrður á varaafli laugardaginn 29. maí frá kl. 08:30 til 18:00. Rafmagnsnotendur eru beðnir um að stilla rafmagnsnotkun í hóf og forðast óþarfa aflbreytingar. Sauðárkrókur og austanverður Skagi verða rekin á varavélum á Sauðárkróki. Mögulega verður rafmagnsleysi í stuttan tíma undir lok tímans og ekki er hægt að útiloka langvarandi rafmagnsleysi.
Meira

Rafmagnstruflanir á Hofsósi, Unadal, Deildardal og Óslandshlíð laugardaginn 29. maí

Rafmagnstruflanir verða á Hofsósi, Unadal, Deildardal og Óslandshlíð 29. maí nk. frá kl. 07:00 til kl. 07:05 og aftur á miðnætti, 00:00 til 00:05 vegna vinnu í raforkukerfinu. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528-9690 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof.
Meira

Fellsborg til leigu

Sveitarstjórn Skagastrandar ákvað á fundi sínum þann 21. maí sl. að auglýsa Fellsborg, félagsheimilið í bænum, til leigu ásamt því að auglýsa eftir aðilum til þess að sjá um skólamötuneyti Höfðaskóla. Á heimasíðu sveitarfélagsins er óskað eftir rekstraraðilum fyrir Fellsborg og skólamáltíðirnar saman þar sem skólamötuneytið er staðsett í Fellsborg.
Meira

Heitast í Blönduhlíðinni

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að veðrið hefur verið með besta móti undanfarna daga. Í gær var veðrið sérstaklega gott og fór hitinn mest uppí 19.9 gráður en sá hiti mældist á Miðsitju í Blönduhlíð. Það kemur Blöndhlíðingum ábyggilega ekki á óvart, enda tala þeir gjarnan um að þar sé alltaf besta veðrið.
Meira

Styttist í að framkvæmdir við Þverárfjallsveg um Refasveit og Skagastrandarveg um Laxá fari í útboð

Eins og sjálfsagt flestir íbúar á Norðurlandi vestra vita þá stendur til að hefja framkvæmdir við Þverárfjallsveg um Refasveit og Skagastrandarveg um Laxá á næstunni en heildarlengd nýrra vega- og brúar verða um 11,8 km. Nú styttist í að verkið verði boðið út en fjárveitingar til verksins eru á samgönguáætlun fyrir árin 2022 til 2024 eða samtals um tveir milljarðar króna og verður stærsta verkefni Vegagerðarinnar á Norðurlandi vestra næstu misserin.
Meira

Íþrótta- og tómstundastarf á Blönduósi í sumar

Það verður nóg um að vera á Blönduósi í sumar þegar það kemur að íþróttum og tómstundum og hefur Blönduósbær gefið út bækling á vef sínum þar sem inniheldur upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf á Blönduósi sumarið 2021.
Meira