„Ég geng sátt frá golfsumrinu eftir þennan hring!"
Anna Karen kát eftir að hafa slegið vallarmetið. Hún er dóttir Hjartar Geirmunds og Katrínu Gylfa. MYND AF FB-SÍÐU GSS
Anna Karen Hjartardóttir gerði sér lítið fyrir og setti nýtt vallarmet af rauðum teigum á Hlíðarendavelli í gær á Advania mótinu. Anna Karen lék 18 holurnar á 68 höggum sem telst vera glæsilegur hringur og frábær árangur. Feykir hafði samband við Önnu Karen.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Tækifæri fyrir ungt fólk | Þátttaka í Erasmus+ verkefni
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Mannlíf 11.09.2026 kl. 11.35 hinrik@feykir.isUngmennum á aldrinum 16–25 ára býðst nú tækifæri til að taka þátt í alþjóðlega Erasmus+ verkefninu The Nordic Youth Project, sem unnið er í samstarfi Húnaklúbbsins á Hvammstanga, aðila í Skotlandi og Finnlandi. Markmið verkefnisins er að virkja ungt fólk í byggða- og samfélagsþróun og skapa vettvang fyrir fræðslu, nýsköpun og frumkvöðlastarf. Þátttakendur frá löndunum þremur munu vinna saman, skiptast á reynslu og ræða meðal annars virka samfélagsþátttöku og hvernig ungt fólk getur haft áhrif á ákvarðanatöku í sínum samfélögum.Meira -
Tígris rækjuréttur og sykurpúðasalat | Matgæðingar Feykis
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Í matinn er þetta helst, Lokað efni 11.09.2026 kl. 10.41 siggag@nyprent.isÞað er Anna Birna Björnsdóttir og eiginmaður hennar Egill Birkir Sigurðsson sem eru matgæðingar vikunnar í tbl. 18. Anna Birna og Egill Birkir eiga heima í Kópavoginum ásamt Íslenska fjárhundinum Týru en þar hafa þau búið í 12 ár. Egill er fæddur á Patreksfirði en flutti ungur á Krókinn með móður sinni Rögnu Jóhannsdóttur, stjúpi hans er Pétur Valdimarsson. Anna Birna er einnig fædd og uppalin á Króknum og er dóttir Badda múrara, seinna Baddi í íþróttahúsinu og Siggu Gísla, dóttur Fjólu Sveins og Gísla Gunnars.Meira -
Fjölmargir tóku þátt í Fjölskylduhlaupinu
Í gær fór fram á Sauðárkróki Fjölskylduhlaup í tilefni af Gulum september en gulur er litur sjálfsvígsforvarna. Hlaupið var frá sundlauginni en einnig máttu þátttakendur ganga eða hjóla. Ágæt þátttaka var í hlaupinu en þó mögulega heldur færri en árið á undan. Feykir var á staðnum og smellti nokkrum myndum af hlaupagikkum af ýmsu tagi.Meira -
„Þetta eru leikirnir sem allir vilja spila“ segir Konni
Síðustu umferðirnar hjá meistaraflokkunum hér á Norðurlandi vestra fara fram á morgun, laugardaginn 12. september. Lið Kormáks/Hvatar mætir Fjölni á Blönduósi og kvennalið Tindastóls hittir fyrir Hauka í Hafnarfirði. Örlög þessara liða eru ráðin en á Króknum er mikið undir þegar Tindastólsmenn taka á móti deildarmeisturum Víðis í Garði. Með sigri eiga Stólarnir séns á að komast upp í 2. deild en þá þarf lið KF að hafa stig af KH á Ólafsfirði. Feykir heyrði í Konna þjálfara.Meira -
Engin verðbólga í Húnaþingi vestra
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra bauð félögum sínum til fjölmennrar grillveislu í gær. Grillað var úti í hádeginu fyrir utan samfélagsmiðstöðina Glaumbæ sem er til húsa á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Á boðstólum var gómsætt lambakjöt frá Sláturhúsi SKVH á Hvammstanga ásamt tilheyrandi meðlæti og drykkjum. Verðið á krásunum var ekki verðbólguhvetjandi því þátttakendur greiddu aðeins 1.000 krónur og gátu etið að vild.Meira
