GSS í 2. sæti Íslandsmóts golfklúbba 3. deildar

Karlasveit GSS með medalíu um hálsinn. Mynd af gss.is
Karlasveit GSS með medalíu um hálsinn. Mynd af gss.is

Karlasveit Golfklúbbs Sauðárkróks lék á Íslandsmóti golfklúbba í 3. deild sem haldið var á Húsatóftarvelli í Grindavík 16.-18. ágúst sl. Sveitina skipuðu þeir Arnar Geir Hjartarson, Brynjar Örn Guðmundsson, Elvar Ingi Hjartarson, Hákon Ingi Rafnsson, Ingvi Þór Óskarsson og Jóhann Örn Bjarkason. Liðsstjóri var Hjörtur Geirmundsson. „Gott silfur er gulli betra!“ segja þeir í GSS, sáttir með árangurinn.

Á heimasíðu GSS segir að fyrirkomulag keppninnar sé holukeppni þannig að spilaður er einn fjórmenningur þ.e. tveir saman í liði og slá annað hvert högg. Síðan eru spilaðir tveir tvímenningsleikir þ.e. maður á mann, í hverri umferð.

Á föstudeginum var byrjað á því að spila við Golfklúbb Húsavíkur og vannst sá leikur með tveimur vinningum gegn einum en seinni leikur dagsins var gegn Golfklúbbi Borgarness. Hann vannst einnig með tveimur vinningum gegn einum. Að loknum keppnisdegi lá fyrir að GSS yrði í efri hluta deildarinnar, en átta lið eru í deildinni.

Á laugardeginum var fyrst leikið við heimamenn í Grindavík og tapaðist sá leikur með tveimur vinningum gegn einum. Seinni leikur dagsins var við Golfklúbb Fjallabyggðar og réði sá leikur úrslitum um það hvort liðið myndi spila til úrslita í deildinni. „Skemmst er frá því að segja að strákarnir spiluðu glimrandi vel í þeim leik og sigruðu alla leiki, þ.e. þrír vinningar gegn engum. Fjórmenningur með Brynjar Örn og Ingva sigraði 5/4, Jóhann Örn sigraði 2/1 og Arnar Geir sigraði einnig 2/1. Það var því ljóst við GSS var á leið í úrslitaleikinn á sunnudeginum,“ segir á gss.is.

„Eins og fyrr segir þá var úrslitaleikurinn á sunnudeginum og þar var aftur leikið við Golfklúbb Húsavíkur. Að þessu sinni voru Húsvíkingar sterkari og sigruðu með 2 vinningum gegn 1 og leika því í 2. deild að ári. Arnar Geir sigraði í sínum leik 2/0, Jóhann Örn tapaði 3/2 og Fjórmenningur Ingva Þórs og Brynjars Arnar tapaði 2/0 í miklum baráttuleik. Golfklúbbur Fjallabyggðar endaði síðan í 3. sæti.

Heilt yfir þá spiluðu strákarnir mjög vel þessa helgi við mjög erfiðar aðstæður, en vindur var mjög mikill alla helgina og völlurinn þurr og harður eftir því. Vissulega hefði verið gaman að landa sigri í deildinni og spila í 2. deild að ári en eins og máltækið segir Gott silfur er gulli betra!.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir