Ísak Óli með fern verðlaun á MÍ í frjálsum

Ísak Óli Traustason var öflugur um helgina. Mynd frá Evrópubikarkeppni landsliða í frjálsíþróttum í Skopje á síðasta ári: Fri.is.
Ísak Óli Traustason var öflugur um helgina. Mynd frá Evrópubikarkeppni landsliða í frjálsíþróttum í Skopje á síðasta ári: Fri.is.

Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss fór fram í Kaplakrika í Hafnarfirði um síðustu helgi þar sem keppt var í tólf einstaklingsgreinum og boðhlaupi, bæði í kvenna- og karlaflokkum. Ísak Óli Traustason var öflugur og sté fjórum sinnum á verðlaunapall.

Á heimasíðu frjálsíþróttardeildar Tindastóls kemur fram að keppendur hafi verið alls 150 frá 13 félögum og samböndum en frá UMSS mættu sex keppendur, sem stóðu sig vel að vanda og enduðu í 4. sæti í stigakeppninni, á eftir FH, ÍR og Breiðabliki.

„Ísak Óli Traustason vann til verðlauna í fjórum greinum, hann sigraði í 60m grindahlaupi á 8,42sek og í langstökki með 6,90m, varð í 2. sæti í stangarstökki með 4,30m og í 3. sæti í 60m hlaupi á 7,05 sek. Auk þess náði hann sínum besta árangri í kúluvarpi.

Andrea Maya Chirikadzi náði sínu besta í kúluvarpi (4 kg), og Sveinbjörn Óli Svavarsson jafnaði sinn besta árangur í 60m hlaupi. Þá sýndi Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, að hún er að nálgast sitt fyrra form í hástökki eftir erfið meiðsli.“

HÉR má sjá öll úrslit á mótinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir