Íþróttamaður USVH 2018

Perla Ruth Albertsdóttir Íþróttamaður USVH 2017.
Perla Ruth Albertsdóttir Íþróttamaður USVH 2017.

Stjórn Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga óskar eftir ábendingum frá íbúum Húnaþings vestra vegna tilnefningar til íþróttamanns USVH árið 2018. Í samræmi við 1. grein reglugerðar um íþróttamann USVH er óskað eftir sem sýnt hefur góðan árangur í sinni keppnisgrein árið 2018.

Ábendingarnar skulu berast stjórn USVH fyrir laugardaginn 1. desember næstkomandi. Hægt er að skila inn ábendingum ásamt greinagerð yfir árangur ársins á skrifstofu USVH að Höfðabraut 6, 530 Hvammstanga, eða með tölvupósti á netfangið usvh@usvh.is

Perla Ruth Albertsdóttir frá Eyjanesi var valin Íþróttamaður USVH 2017 en áður en árið var liðið hafði hún fengið tvo heiðurstitla í viðbót þar sem hún var valin Íþróttakona UMF Selfoss og Íþróttakona Árborgar. Sjá HÉR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir