Krækjur í toppsæti 2. deildar

Krækjur sigursælar. MYND AF FB
Krækjur sigursælar. MYND AF FB

Krækjur frá Sauðárkróki tóku þátt í keppni í 2. deild Íslandsmótsins í blaki um helgina og var spilað á Neskaupstað. Krækjurnar, sem keppa undir merkjum Umf. Hjalta, gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sex leiki sína 2-0 og töpuðu því ekki einni hrinu á mótinu.

Þær hófu leik snemma á laugardagsmorgni með því að vinna Þrótta Rc, síðan var það HK H sem lá í valnum, þá lið Fylkis og loks lið Ýmis B. Á sunnudeginum spiluðu stelpurnar síðan við ÍK og HK G og allt fór á sömu leið þar.

Frábær árangur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir