Lykilmenn mfl. Tindastólskvenna í körfu skipta yfir í Þór Akureyri

Marín Lind við undirritunina. Mynd: Þór Akureyri.
Marín Lind við undirritunina. Mynd: Þór Akureyri.

Það hefur vakið athygli í sumar að lykilmenn meistaraflokks Tindastólskvenna í körfubolta hafa verið að skrifa undir hjá nágrönnum okkar í Þór Akureyri. Nú síðast í gær bárust þær fréttir að Marín Lind Ágústsdóttir hafi skrifað undir hjá Akureyrarliðinu.

Áður í sumar höfðu þær Eva Wium ElíasdóttirKaren Lind Helgadóttir og Kristín María Snorradóttir skrifað undir hjá Þór, en þær léku allar með liði Tindastóls á seinustu leiktíð í fyrstu deild kvenna. 

Eva Wium og Karen Lind eru báðar uppaldir Þórsarar en þær léku stórt hlutverk í liði Tindastóls á seinustu leiktíð. Kristín María og Marín Lind eru uppaldir Króksarar. 

Feykir óskar stelpunum góðs gengis á Akureyri og fylgist spenntur með því hvernig stjórn KKD Tindastóls mun fylla í skarð þeirra fyrir komandi tímabil. 

/SMH

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir