Meistaramót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi 2021
Dagana 2. - 3. júlí var Meistaramót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi haldið. Keppt var í meistaraflokki karla þar sem að Jón Jóhannsson bar sigur úr býtum, meistaraflokki kvenna þar sem að Birna Sigfúsdóttir stóð uppi sem sigurvegari og í 1. flokki karla en þar sigraði Grímur Rúnar Lárusson. Það er Húni.is sem greinir frá.
Úrslitin urður eftirfarandi.
Meistaraflokkur karla.
1. sæti Jón Jóhannsson.
2. sæti Eyþór Franzson Wechner.
3. sæti Valgeir M Valgeirsson.
Meistaraflokkur kvenna.
1. sæti Birna Sigfúsdóttir.
2. sæti Greta Björg Lárusdóttir
1. flokkur karla.
1. sæti Grímur Rúnar Lárusson.
2. sæti Marteinn Reimarsson.
3. sæti Hafsteinn Pétursson.
4. sæti Ágúst Þór Bragason.
/SMH