Órion á norrænu rafíþróttamóti

Félagsmiðstöðin Órion á Hvammstanga tók þátt í norræna rafíþróttamótinu Nordic E-Sport United sem haldið var á netinu 6.-7. nóvember en félagsmiðstöðvar frá Íslandi og Danmörku tóku þátt. Æfingar fóru fram gegnum netið undir leiðsögn Jóhannesar G. Þorsteinssonar og Aðalsteins Grétars Guðmundssonar, en þeir hafa séð um „Rafíþróttir í Húnaþingi“ sem er félag fyrir alla í Húnaþingi sem hafa áhuga á tölvuleikjaspilun. Þar að auki var Aleksandar Milenkoski fenginn til að halda smá námskeið fyrir krakkana, en hann hefur m.a. keppt í Counter-Strike: Global Offensive (betur þekktur sem CS:GO) í íslensku rafíþróttadeildinni.

Á heimasíðu Húnaþings vestra kemur fram að æfingar hafi farið fram í nokkrar vikur fram að mótinu, og tóku krakkar í 8. – 10. bekk þátt í æfingunum þar sem spilað var CS:GO og Fortnite.

„Af mótinu ber þar helst að nefna þá Arnar Finnboga Hauksson og Elvar Orra Sæmundsson úr Grunnskóla Húnaþings vestra sem tóku þátt í CS:GO í tvíliðaleik. Elvar þurfti því miður frá að hverfa í miðri keppni, og þá tók Sindri Þorvaldsson við af honum til loka keppninnar. Þeim þremur gekk nokkuð vel og enduðu á að lenda 2. sætinu í sínum flokki. Þau sem hafa áhuga á rafíþróttum eða tölvuleikjum almennt er bent á Facebook síðu „Rafíþrótta í Húnaþingi“. Að lokum má þess geta að næst á döfinni hjá félaginu er að halda „innanbæjarmót“ í Húnaþingi, en það verður auglýst betur þegar nær dregur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir